Sérnöfn eða Samnöfn ??

Það er nú lítið að gerast hér á bæ sem er þess virði að segja frá , sumrinu frá í fyrradag lokið og kominn snjór yfir allt.

Kolbrún Halla er endalaus uppspretta hláturs og gleði ( þó barnið sé að springa úr sjálfstæði / frekju ) hún talar alltaf um og við afa sinn með skírnarnafni, " er Ari að ekki heima " segir hún kannski og maður leiðréttir hana " Afi ! " " Jááá ??" svarar hún og heyrir engan mun og skilur ekki þessa eilífu endurtekningu sem truflar bara frásagnir hennar. svo  eina helgina fór Þórunn Hulda með afa sínum í sveitinni suður til pabba síns.  Ég spurði K.H. hvar Þórunn væri " hún fór með Ara sínum " var svarið. Grin  og í dag var prinsessan að skoða bókina um Heiðu  og sýndi forsíðuna þar sem voru  " Heiða og Arinn hennar "að sögn    LoL sem sagt hlátur og meiri hlátur . Það endar með að maður verður allt of gamall með þessu áframhaldi --aka hláturinn lengir lífið--.

Ég á 4 kanínur. 2 sem eru inni og lifa í vellistingum og  komast upp með að sóða allt út.

Og síðan 2 sem eru hafðar úti  og í hvert sinn sem kemur svona kulda / snjóa skot fæ ég logandi samviskubit yfir meðferðinni á þeim , og í hvert sinn virðist þeim sko alveg sama  , kuldinn bítur ekkert á þær og þær njóta bara samviskubits míns út í æsar því þá er ég endalaust að gefa þeim eitthvað gott að éta

Ég er reyndar alltaf að hugsa um að losa mig við þær en í hvert skifti sem ég finn pláss fyrir þær tími ég ekki að láta þær Þetta er náttúrlega bilun Blush

Svo er ég alveg að springa á limminu --að fá mér aldrei aftur hund--Haldið þið ekki að einn samstarfsmaður minn eigi " von á " hvolpum djíí hvað það verður erfitt MAÐUR "

      !beagle2beagle1

Haldið þið að það væri kannski nóg að búa til einn svona, ég gæti kannski sett inn í hann svona spangól ? 

    Nei ég held ekki að það dugi

 

     

               Kveðja       

     KANINKA
 


Sumar ???

Það held ég að þorrablótið tækist vel .Góð mæting og allir glaðir krakkarnir sáu um skemmtiatriði að vanda það voru brandarar, Margrét flutti frumsamið ljóð sem hún orti í tilefni dagsins svo var tískusýning þar sem Kolbrún Halla gjörsamlega brilleraði, Hún var fyrst norn með tilheyrandi urri og klóri út í loftið , svo var hún kisa og henni stökk ekki bros meðan allir aðrir voru að míga á sig af hlátri. hún var óborganleg barnið set inn myndir af því seinna.  Úti var nægur snjór til að eldri krakkarnir gátu rennt sér á þotum og sleðum og skemmtilegast var að renna sér yfir auðan hól sem stóð upp úr snjónum  og útgangurinn á grísunum á eftir djísusss  Whistling

Í dag er þvílík sumarblíða að maður kemst bara í vorfíling...kanski fullsnemmt samt....  Ég held hitinn sé um 8' og allt að þorna úti sem er nú fyrir mestu því bleytan var orðin skelfileg.

Ég sit hér í vinnunni .það eru löngu frímínútur og ég bíð eftir næstu nemendum til mín.  Stundum fæ ég hingað niður til mín krakka sem koma ekki alla jafna en þurfa smá " skúbb" þá gerist oft svolítið fyndið  því sá sem er svona " aðal" minn verður svo afbríðisamur og ég þarf heilmikið að tala hann til og oftast endar sagan vel en þó ekki alltaf frekar en aðrar sögur.

Og núna eru þeir að koma blessaðir strákarnir svo bless í bili

 

KANINKA.

 

 


Þorrablót .. Þorrablót

Nú er tími þorrablótanna eins og allir vita ...ég fór á eitt slíkt í gær þar var nú ekkert drukkið sterkara en  egils kristall og enginn dansinn en brandararnir maður minn þeir fuku sko LoL
og gleðin eftir því .

Þetta var semsagt 5. bekkjar þorrablót og allir yngri en 12 ára fluttu skemmtiatriði það var söngvakeppni, og brandarakeppni og gátur og sögur og og bara allt sem er skemmtilegt.

Þórunn Hulda vann meira að segja brandarakeppnina með frábærum páfagauksbrandaraWink

þorrablót 006

En um helgina förum við svo á " stórfjölskyldublót " þar sem hittumst við  systkinin og allir okkar afkomendur sem tök hafa á , ef að vanda lætur verður gg gaman  vonandi komast sem flestir .

Bestu kveðjur KANINKA 


Kirkjuferð

Ég var að koma úr messu. sem skeður nú ekki oft --því miður-- En þar sem standa fyrir dyrum 3 fermingar í barnahópnum er eins gott að standa sig í trúariðkuninni.

Ekki það  ég lít nú svo á að maður þurfi ekki að fara í kirkju til þess, ég finn nú eiginlega betur fyrir nærveru guðs míns úti í náttúrunni t.d. fram á " heiði " í glampandi sól eða í hörku frosti þegar allt glampar og geislar. Eða bara í Draumalandi. 

En í dag voru frænkurnar Margrét Hildur " mín" og Guðbjörg "hans " Óla bróður að lesa upp í kirkjunni og fórust það vel stúlkunum þó textinn væri þvílíkur tungubrjótur,  það hlýtur að hafa verið erfitt að lesa texta sem þú skilur ekki nema 3. hvert orð. En þær lásu semsagt með sóma allann textann.

 

 

3 004
 

 

Talandi um Draumaland þá var ég að fá rukkun um skatta og skyldur þar og enn stendur bara  -- land númer þetta í sveitarfélaginu Skagafirði -- ég sem lagði heilmikið á mig í sumar til að fá nafnið Draumaland skráð  og meira að segja FÉKK að borga fyrir  ég ætla nú að bíða og sjá svolítinn tima áður en ég verð brjáluð, þetta fer nú samt í taugarnar á mér

Lika finnst mér nú bara fyndið að vera alltaf rukkuð um SORPEYÐINGAGJALD  þar sem aldrei er losað hjá okkur sorp af neinu tagi og við förum með þennan haldapoka af rusli sem til fellur eftir dvölina hvert sinn , með okkur heim.

En svona er nú víst lífið.

KANINKA

 

--


Brandari dagsins

Maður getur nú stundum gengið fram af sjálfum sér með frekjuna, eða þá að " neyðin kenni naktri konu að spinna "Í vandræðum minum vegna garnskorts var mér bent á að móðir eins barnsins " míns" væri í R-vík og ég bara sendi henni SMS á stundinni og bað hana ásjár ( ég vissi svosem að það væri mér óhætt)  hún brást hin BESTA við og reddaði mér svo nú get ég klárað flíkina Kærar þakkir Lena mín og Elísa . Margt er nú skemmtilegra en að þurfa að hætta við flík sem maður er að búa til vegna þess að maður fær ekki garn eða efni sem mann vantar svo þetta bjargaði þessum mánuði .

Ég las frábæran brandara um daginn : Kvensamur karl  vaknaði einn sunnudagsmorgun og sá að bíllinn hans var horfinn, í vandræðum sínum heimsótti hann prestinn og bar sig upp við hann og sagði bílnum sínum hafa verið stolið . Presturinn vorkenndi karlgreyinu og sagði honum að koma til messu hjá sér eftir hádegið og þá myndi hann fara með boðorðin 10 úr stólnum og þegar kæmi að " þú skalt ekki stela " ætti karlinn að líta vel í kringum sig því hinn seki mundi áreiðanlega verða sakbitinn á svipinn og koma upp um sig.

Þegar síðan presturinn fór með boðorðin og kom að  " þú skalt ekki stela " leit hann á karlinn og skyldi ekkert í því að hann hreyfði sig ekki og leit ekki upp. Eftir messuna spurði presturinn hverju þetta sætti

" ég þurfti þess ekki  " sagði karlinn " þegar kom að boðorðinu " þú skalt ekki drýgja hór " þá mundi ég hvar bíllinn er . LoL    000201C1
 

Kaninka 

 


Glasastríðið mikla

"Hann fór á Akureyri í gær hann Úrban bóndi......" Alltaf gaman að skreppa á Akureyri, sérstaklega í öskuhríð og roki og á PÍNUlítilli dós. Hjálparsveitin hvað??   Annars var nú ekki svo vont nema á smákafla í Bakkaselsbrekkunni og fínt á leiðinni heim, gat losað mig við nokkrar krónur sem voru farnar að íþyngja mér ískyggilega. ég fékk þó ekki garnhespuna sem mig vantar til að klára töff kjólinn á Helgu. Angry  for helvede eða þannig.

Ein svona heimilissaga : Fyrir nærri 50 árum Stal  hann Ari minn 6 glösum í gamla Vetrargarðinum í  R- vík -----þá voru ungir menn eins og núna til í ýmislegt á 3. glasi--- síðan þá hefur hann alltaf drukkið kaffið sitt úr þessum glösum og enn eru eftir 3 - 4  ; Nema hvað Anna á svona glös og í gær kom einhver gestur til hennar og hún dróg fram eitt glasið og bauð kaffi þá rauk Kolbrún Halla (3. ára ) upp og byrsti sig reif glasið og hrópaði " ekki þetta glas , þetter afa glas" röggsöm sú stutta Smile 

Ekki veit ég hvort afi hennar hefur verið að innprenta henni virðingu fyrir þessum glösum sem eru vægast sagt ekki falleg og konan hans marghótað að henda, kannski hann sé að fá börnin í lið með sér í  svona "glasavarnalið" ??  hvað veit ég.1155428614_emot97

 

Svona gengur lífið   Kaninka 

 

 

 


Vetrarstörf ; )

Allt í einu er komin svona alvöru vetur með hríð og snjó og látum . Ekki get ég nú sagt að ég hafi saknað hans ,mér væri sko alveg sama þó ég sæi aldrei aldrei snjó .Það get ég svarið !!

það er eitt sem gerist í mínu lífi svona á að sirka einu sinni á hverjum áratug og það gerðist semsagt í morgun og kemur þá vonandi ekki fyrir aftur fyrr en svona 2019 . nógu er þetta óþægilegt. ......HVAÐ ?? Hvað kom fyrir ???

jú ég svaf yfir mig Angry og ekki orð um það meir .

Í svona veðri er eðlilega innivera hjá okkur mér og krökkunum og til að létta mér lífið kem ég oft með að heiman eitthvað skemmtilegt föndurdót ---lesist skrappdót --- á svona dögum því þá una "allir " sér við að teikna og gata og líma og ég þarf ekki að gera neitt!!  nema einn galli er á gjöf Njarðar ég fæ svo svakalega mikið af myndum gefins  sem safnast í búnka og geta ekki farið í ruslakörfuna fyrr en hvert einasta barn er farið heim.  Á myndirnar er svo skrifað svooo fallega til:  Hagla sem er vinsælast eða Hadla eða Hala og svo stundum HallaYndislegt  InLove  og oft er bætt við gjarnan með fallegum lit " þú ert best " Maður veltir sér upp úr allri þessari aðdáun eins og þetta sé heilagur sannleikur og vonar að litlu skinnin vitkist ekki of hratt ( að þessu leiti ) 

 

Svona er nú lífið hjá okkur Kaninka 


Þessi börn :)

Núna er puttaprjón - og hekl inn á skóladagheimilinu  og við erum búin að gera þessa fínu gardinu fyrir gluggann sem vísar út í heita pottinn við sundlaugina , hún er öll puttaprjónuð/hekluð, af  okkur sem erum á skóladagheimilinu og erum á aldrinum 6 -63. ( rosalega langar mig í nafn á skóladagheimilið   svona eins og skjólið, hreiðrið, os.frv. en finn ekkert sem ekki er notað fyrir ) en semsagt við vorum að hekla með puttunum og krökkunum fannst ég vera fljót

" hvernig geturðu heklað svona hratt?" var spurt

" nú ég er orðin fullorðin og hef þessvegna gert þetta svo oft , þá verður maður svona fljótur " svaraði ég.

"neei það held ég ekki" sagði einn 6 ára ákveðinn. " Þú hlýtur að hafa lært þetta hjá Siggu þegar ÞÚ  varst lítil !!"

" ha !! "

" já Sigga kennir sko textilmennt "

þar hafði ég það Blush en vel að merkja það er talsverður aldursmunur á okkur Siggu önnur er 63 og hin rúmlega 40  og það er semsagt ekki Sigga sem er 63.      Þau eru oft óborganleg þessi börn  ekki satt ??

 

svona er lífið   Kaninka

103


Peningar eru ( ekki) allt

Þá er maður bara komin með bloggvin Grin  Ég sem ætlaði svosem aldrei að blogga neitt..bara halda þessu svona opnu ....Ég held þú verðir nú fyrir vonbrigðum Muse mín . Það verður eflaust fátt spennandi hér. en aldrei að vita !

 

Annars er ég núna að velta mér upp úr siðleysi stjórnmálamanna, bæði lands- og bæjarpólitíkusa, skömm að þeim, Devil  nú eru þeir  sem  ráða  þessum bæ búnir að taka  þá ákvörðun að hækka eigin laun um tugi prósenta, vááá! getur maður orðið dáldið reiður, ég vinn nú sjálf hjá bænum og ég hef lúsarlaun ,undir framfærsluviðmiði  og tek aftur fram að ég er að vinna . Ég var líka í nefnd hjá bænum fyrir fáum árum og mér fannst aukalaunin sem ég fékk fyrir hvern nefndarfund bara vera ágætis bónus  fyrir að sitja og kjafta svolítið og taka ákvarðanir um hvað annað fólk ætti að gera.

Svo ég get ekki ímyndað mér annað en fólkið sem er í bæjarstjórn og sækir fjölda funda í allskonar nefndum og fær að auki fast kaup hafi alveg nóg. Það verða þá varla vandræði með að borga mínum líkum mannsæmandi laun ! GetLost

 Eeen ég hef líka setið í samninganefnd  um launakjör og það skritna er að þá ,einmitt þá eru alls engir peningar til  kjarabóta EINKENNILEGT að það skuli alltaf hittast þannig á.

Nú er einmitt " Samningavetur" og hvað gerist ENGIR FJÁRMUNIR TIL" í landinu öllu . nema fyrir bæjarstjórnendur . og örugglega líka alþingismenn.

Talandi um klúðrið í borgarstjórn R-víkur Hvernig er það erum við ekki að borga tveim bæjarstjórum laun, var ekki samið um biðlaun við fyrrverandi sem hljóp í burt þegar grasið varð grænna.....

 

Þetta varð nú meira rausið ,en svona er lífið.

kveðja  Kaninka 

 

 


Nýtt ár 2008

jól 096

Jólin að verða búin og Komið nýtt ár,

Búin að opna nýja bloggsíðu !!...konan sem getur ekki skilið af hverju fólk þarf að vera að opinbera hugsanir og tilfinningar á veraldarvefnum  Wink en svona er lífið. Aldrei gægt að vita hvað það ætlar manni. 

Aðallega er þetta þó gert vegna þess að ég þarf alltaf að vera að skipta mér af og sletta mér fram í hjá öðru fólki, ég þarf helst að vera skráð á bloggið til að commenta á aðra svo svona er þetta bara  Tounge

ekkert nema afsakanir !!

 

 

En í morgun lauk þráðu jólafríi sem var nú orðið alveg nógu langt maður var bara lagstur í ómennsku , leti og áts. Svo nú var nóg komið.

ég fer að vinna aftur eins og í fyrravetur. við stuðningskennslu fyrir hádegi og svo með skóladagheimilið -eins og verið hefur -eftir hádegið það er fínt því ekki lifir maður lengi á sléttum 100.000 kallinum   ( og tæplega þó ) lengi !! 

Annars voru jólin bara góð nóg að bíta og brenna og mikil samvera með skemmtilegu fólki = fjölskyldunni.

en nú eru flestir roknir út í buskann . Út á sjó suður í R-vík og í skólana sína.

Svona er nú lífið kveðja Kaninka 

 


« Fyrri síða

Höfundur

Kaninka
Kaninka
Allt sem kona á góðum aldri getur verið  

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • Aqua1
  • 20050407222417 0.gif
  • 5-703037
  • 6-703091
  • stjarna

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 194

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband