23.1.2008 | 10:58
Peningar eru ( ekki) allt
Þá er maður bara komin með bloggvin Ég sem ætlaði svosem aldrei að blogga neitt..bara halda þessu svona opnu ....Ég held þú verðir nú fyrir vonbrigðum Muse mín . Það verður eflaust fátt spennandi hér. en aldrei að vita !
Annars er ég núna að velta mér upp úr siðleysi stjórnmálamanna, bæði lands- og bæjarpólitíkusa, skömm að þeim, nú eru þeir sem ráða þessum bæ búnir að taka þá ákvörðun að hækka eigin laun um tugi prósenta, vááá! getur maður orðið dáldið reiður, ég vinn nú sjálf hjá bænum og ég hef lúsarlaun ,undir framfærsluviðmiði og tek aftur fram að ég er að vinna . Ég var líka í nefnd hjá bænum fyrir fáum árum og mér fannst aukalaunin sem ég fékk fyrir hvern nefndarfund bara vera ágætis bónus fyrir að sitja og kjafta svolítið og taka ákvarðanir um hvað annað fólk ætti að gera.
Svo ég get ekki ímyndað mér annað en fólkið sem er í bæjarstjórn og sækir fjölda funda í allskonar nefndum og fær að auki fast kaup hafi alveg nóg. Það verða þá varla vandræði með að borga mínum líkum mannsæmandi laun !
Eeen ég hef líka setið í samninganefnd um launakjör og það skritna er að þá ,einmitt þá eru alls engir peningar til kjarabóta EINKENNILEGT að það skuli alltaf hittast þannig á.
Nú er einmitt " Samningavetur" og hvað gerist ENGIR FJÁRMUNIR TIL" í landinu öllu . nema fyrir bæjarstjórnendur . og örugglega líka alþingismenn.
Talandi um klúðrið í borgarstjórn R-víkur Hvernig er það erum við ekki að borga tveim bæjarstjórum laun, var ekki samið um biðlaun við fyrrverandi sem hljóp í burt þegar grasið varð grænna.....
Þetta varð nú meira rausið ,en svona er lífið.
kveðja Kaninka
Bloggvinir
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við erum víst að borga fyrir þrjá borgarstjóra....Villa ennþá og í 3 mán enn, held ég, Dag núna og í 3 mán. fyrir hann í viðbót og svo fyrir þann nýja..Borgarstjóri fær 1 milljón og 50 þúsund í grunnlaun á mán þ.e. sömu laun og forsætisráðherra Íslands. Þannig að borgin er að greiða rúmar 3 millur á mánuði, bara í þessa karla...eins gott að þessum hræringum fari að ljúka. Maður ætti nú kannski að fara að reyna að troða sér í pólitíkina...
Mér finnst þetta skítt með launahækkunina hér, þeir sem vinna með krakkana okkar ættu að vera búnir að hækka fyrir lifandis löngu og svo mætti líka bæta við starfsfólki líka á sumum stöðum...leikskólagjöldin voru að hækka, einhversstaðar þarf að klípa af til að stjórnendurnir gerti haldið áfram að maka krókinn sinn.
alva (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 19:02
Haddý (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 19:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.